12.05.1950
Sameinað þing: 49. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 368 í D-deild Alþingistíðinda. (3955)

150. mál, austurvegur

Eiríkur Einarsson:

Ég ætla að skjóta því til hæstv. forseta, hvort hann vill ekki gera svo vel að inna þá hv. n., sem hefur til athugunar þáltill. um framkvæmd Austurvegar, eftir því, hvort hún treysti sér ekki til að skila sem bráðlegast álitsgerð eða álitsgerðum, til þess að málið fengi möguleika til þess að ná þinglegri afgreiðslu á þessu þingi. Ég vænti þess, að hæstv. forseti beiti sinni röggsemi, til þess að svo megi verða.