18.01.1950
Sameinað þing: 19. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 394 í D-deild Alþingistíðinda. (4018)

89. mál, stríðsskaðabætur af hálfu Þjóðverja

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ætli a-liður fyrirspurnarinnar heyri ekki undir mig? Ég hafði frekar gert ráð fyrir að svara þeirri fyrirspurn og skal gera það, ef hv. fyrirspyrjanda er það ekki á móti skapi. (FJ: Nei, það er einmitt ágætt.)