03.05.1950
Sameinað þing: 43. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í D-deild Alþingistíðinda. (4062)

149. mál, ráðstöfun tíu togara

Fyrirspyrjandi (Einar Olgeirsson):

Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir upplýsingarnar. Þær eru náttúrlega þær einu, sem hægt er að gefa á þessu stigi málsins, þar sem ríkisstj. hefur ekki tekið ákvarðanir um, hvað skuli gert, og málið er þess vegna á samningastigi enn sem komið er.