03.05.1950
Sameinað þing: 43. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í D-deild Alþingistíðinda. (4067)

903. mál, uppbætur á eftirlaun

Fyrirspyrjandi (Ásmundur Sigurðsson):

Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir upplýsingarnar. Hann svaraði því skýrt og skilmerkilega, að þessi heimild hefði ekki verið notuð. Hinni spurningunni, sem ég bar fram, svaraði hann ekki, hvers vegna þessi heimild hefði ekki verið notuð eins og hin.