10.05.1950
Sameinað þing: 47. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 424 í D-deild Alþingistíðinda. (4099)

908. mál, gengisskráning ítalskrar líru

Viðskmrh. (Björn Ólafsson):

Ég svaraði fyrirspurn; sem borin var fram á sínum tíma, á þann veg, að ég teldi eðlilegt, að líran væri skráð á eðlilegu gengi eins og önnur mynt. Þetta með skráningu lírunnar hefur verið athugað undanfarið, og Landsbankinn hefur skrifað ráðuneytinu fyrir nokkrum dögum, og hann telur gerlegt að skrá líruna. Undanfarið skilst mér að ekki hafi verið talið fært að skrá hana á venjulegan hátt af ýmsum ástæðum. En það er ekki búið að taka ákvörðun um þetta mál endanlega vegna þess, hve stutt er síðan bréfið kom frá bankanum, og stendur því fyrir dyrum að taka ákvörðun um það, hvað gera á við þetta mál, hvort skrá á líruna eins og farið er fram á.