10.05.1950
Sameinað þing: 47. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 425 í D-deild Alþingistíðinda. (4100)

908. mál, gengisskráning ítalskrar líru

Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):

Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans. Ég vona fastlega, að þegar ákvörðun verður tekin um þetta mál, verði hún á þá lund, að gengi lírunnar verði skráð í fullu samræmi við gengi annarra mynta, en að krónan verði ekki lækkuð enn frekar gagnvart þessari mynt.