16.05.1950
Sameinað þing: 50. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í D-deild Alþingistíðinda. (4129)

911. mál, áburðarverksmiðja

Fyrirspyrjandi (Einar Olgeirsson):

Herra forseti. Ég leyfi mér að þakka hæstv. ráðh. upplýsingarnar. Það er gott, að málið skuli komið svo langt, að nú eigi að fara að ganga eftir leyfinu til að byggja verksmiðjuna og jafnframt að endurskoða kostnaðaráætlanir.