13.01.1950
Efri deild: 33. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í B-deild Alþingistíðinda. (455)

51. mál, tollskrá o.fl.

Gísli Jónsson:

Ég gerði áðan grein fyrir afstöðu minni til þessa máls. Ég vil hér mótmæla því, sem síðar kom fram hjá hv. þm. Str., og lýsa það útúrsnúning. Hér er ekki um nýja tolla að ræða, heldur aðeins framlengingu á innheimtu eldri tolla, sem þarf að staðfesta, en féll niður af vangá fyrir áramótin. Ég segi því já.