17.12.1949
Neðri deild: 16. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1544 í B-deild Alþingistíðinda. (52)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Forsrh. (Ólafur Thors):

Ef það er ætlunin að fara út í skæting, þá skal ekki standa á mér. Þessi maður er búinn að sitja í ríkisstj. í 3 ár og sýnist ekki vita neitt um það ástand, sem nú er í landinu. En þótt nú þurfi skjótra úrræða við, getur samt verið þörf að bíða það lengi, að menn fái rétta spegilmynd af því ástandi, sem ráða þarf bót á.