10.01.1950
Efri deild: 25. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 226 í B-deild Alþingistíðinda. (529)
29. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég vildi aðeins taka það fram, að ég þykist ekki hafa gert neinar árásir á hæstv. ríkisstj. fyrir það, að hún hafi ekki tekið þetta inn í fjárlög. En ég álít að í nál. eigi að koma fram þær upplýsingar, sem ég hef beðið um, og það hefur verið viðurkennt af hæstv. ráðh. Ég ásaka heldur ekki hæstv. ríkisstj. fyrir það, þótt hún hafi ekki haft framsögu í málinu. En ég endurtek það, að ég tel mikils vert að fá um það upplýsingar, hve mikil sú upphæð er, sem þarf að taka inn á fjárl. nú samkvæmt þessu.