31.01.1950
Efri deild: 42. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 250 í B-deild Alþingistíðinda. (563)

29. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna

Atvmrh. (Jóhann Jósefsson):

Eins og kunnugt er, er heimild til fyrir ráðuneytið að verja 11/2 millj. kr. til kreppulána til síldveiðibáta. Það mál er nú í rannsókn í fjmrn. Veit ég ekki, hvort nokkuð liggur fyrir, að hægt verði að framkvæma þetta. En meðan svo er ástatt, er eigi hægt að leggja heimild til viðbótar á herðar ríkisstj. Hins vegar vil ég ekki leggja neinn trafala á, að þetta nái fram að ganga, ef eitthvað greiðist úr, og greiði því ekki atkv. Brtt. 270,2 og 271,2 samþ. án atkvgr.