17.01.1950
Efri deild: 37. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í B-deild Alþingistíðinda. (571)

95. mál, dýrtíðarráðstafanir

Atvmrh. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Það var fyrst og fremst formsins vegna, að ég hljóp hér í skarðið fyrir hæstv. fjmrh., en að því er snertir þessa fyrirspurn, tel ég mig ekki hafa rétt til að svara henni, heldur verður hv. fyrirspyrjandi að þola þá bið að bíða með upplýsingar þangað til hinn rétti ráðh. er mættur í hv. d.