21.03.1950
Neðri deild: 68. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 450 í B-deild Alþingistíðinda. (771)

125. mál, gengisskráning o.fl.

Forseti (SB):

Mér hefur borizt skrifl. brtt. frá hv. 2. þm. Reykv., við 1. brtt. á þskj. 448, að í staðinn fyrir „4% ársvöxtum“ komi „2% ársvöxtum.“ Þessi brtt. er of seint fram komin og þar að auki skrifl. Þarf tvöföld afbrigði til þess, að hún megi komast hér að.