15.05.1950
Neðri deild: 101. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1557 í B-deild Alþingistíðinda. (80)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég hef veitt því athygli, að enn er ekki komið á dagskrá frv. um ríkisborgararétt, sem komið var til 3. umr., og mig minnir, að enginn hafi verið á mælendaskrá. Ég leyfi mér að spyrja forseta, hvort ekki sé von til, að þetta mál komi á dagskrá.