18.03.1950
Neðri deild: 70. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 530 í B-deild Alþingistíðinda. (826)

125. mál, gengisskráning o.fl.

Viðskmrh. (Björn Ólafsson):

Ég vildi bara leiðrétta eitt atriði í ræðu hv. 3. landsk. (GÞG), þar sem hann sagði, að ég hefði lýst yfir því, að ekki mundi vera hægt að greiða 93 aura fyrir fiskinn. Ég sagði þetta alls ekki. Ég sagði, að ríkisstj. hefði ekki gefið neina yfirlýsingu í þessum efnum og reynslan mundi skera úr því. Annað sagði ég ekki. Ég vildi bara leiðrétta þetta.