01.03.1950
Efri deild: 66. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 558 í B-deild Alþingistíðinda. (879)
53. mál, eignakönnun
Frsm,. (Haraldur Guðmundsson):
Herra forseti. Það eru ýmsar undarlegar yfirlýsingar, sem koma fram í þessum furðulegu orðaskiptum hæstv. atvmrh. og hv. 1. þm. N-M., sem mér skilst þó, að hafi verið eins konar trúnaðarmaður hans í skattamálum. Ég furðaði mig einnig á orðum jafnhógværs manns og hv. þm. Barð. (GJ), þegar hann sagði, að eignakönnunin hefði verið það mesta böl, sem yfir þjóðina hefði dunið á síðari árum, og að ekki einu sinni karakúl undanskildu. Ég mun ekki leggja út af þessum orðum nú. Efni frv. þessa virðist vera aukaatriði. Ég vil taka það fram, að skattstiginn lækkar í 15%, en ef framteljandi telur sig hafa orðið hart úti, þá getur hann fært sönnur á, að eignaraukningin hafi færzt á einstök ár. Þetta vildi ég, að kæmi fram, áður en gengið verður til atkv. Ég verð að segja, að rök hv. þm. Barð. um háskasemi l. eru ekki sannfærandi. Hann sagði, að fjögur gamalmenni hefðu lent í eignaraukaskatti af því, að þau hefðu gleymt að telja fram smáupphæðir. Ef ekki eru til þyngri rök gegn frv., sem mér þykir þó slæmt að skyldu koma fyrir, þá tel ég það ekki sannfærandi. Þá vil ég taka það fram, að ég vil láta leggja á stighækkandi skatt.