07.12.1949
Neðri deild: 8. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 610 í B-deild Alþingistíðinda. (951)

46. mál, sauðfjársjúkdómar

Landbrh. (Jón Pálmason):

Herra forseti. Það stendur eins á um þetta mál og það, sem var á dagskrá næst hér á undan (frv. til jarðræktarlaga), að það er undirbúið og lagt fyrir þingið af hæstv. fyrrv. stj. Þykir mér því réttast, að fyrrv. hæstv. landbrh. geri grein fyrir því, þar sem hann á sæti í þessari deild.