02.11.1950
Efri deild: 13. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 509 í B-deild Alþingistíðinda. (1105)

20. mál, bann gegn botnvörpuveiðum

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég þakka n. fyrir undirtektir hennar. Mig minnir, að ég hafi beint því til n. við 1. umr., hvort henni sýndist ekki rétt að breyta einnig að þessu leyti l. um ólöglegar dragnótaveiðar, og er vikið að þessu í aths. við frv. Mér skilst, að fyrst verið er að lækka sektirnar fyrir ólöglegar togveiðar, þá sé eðlilegt að breyta á sama hátt hliðstæðum ákvæðum um dragnótaveiðar.