07.11.1950
Neðri deild: 17. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 509 í B-deild Alþingistíðinda. (1112)
20. mál, bann gegn botnvörpuveiðum
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Frv. þetta er flutt til þess að fá lækkaðar sektir fyrir ólöglegar botnvörpuveiðar hinna minni skipa, eða báta innan 115 smálesta. Það má vera augljóst, að slík skip standa ekki undir jafnháum sektum sem hin stærri skip, sem stunda botnvörpuveiðar, en við þau er miðað í núgildandi lögum um þetta efni. Það hefur því reynzt ómögulegt að innheimta þessar háu sektir hjá skipstjórum þessara minni báta, og hefur því það ráð verið tekið að lækka sektirnar niður í 5–40 þús. kr. með náðun. Nú er það ljóst, að sá háttur dugir ekki til frambúðar, að breyta refsiákvæðunum með náðun, eins og ill nauðsyn hefur borið til. Það þótti því rétt að flytja frumvarp um að lögfesta þá afstöðu, sem tekin hefur verið upp gagnvart minni skipum í þessu máli og reynslan hefur sýnt, að ekki var hægt að sniðganga. Ég get þó fullyrt, að þrátt fyrir þá lækkun á sektum, sem hér er gert ráð fyrir, þá muni reynast fullerfitt að innheimta þær. En ef þetta frv. nær fram að ganga, þá verður auðvitað lagt allt kapp á að staðið verði við greiðslur á þeim sektum, sem lög þessi kvæðu þá á um. Og ef hv. Alþ. treystist ekki til að samþ. þetta frv., verður hætt að náða eins og gert hefur verið og bátar dæmdir í 70–80 þús. kr. sekt, án þess að tekið verði tillit til stærðar þeirra.
Ed. hefur samþ. frv., og vona ég, að þessi hv. deild geri það einnig.
Þessu frv. fylgir einnig frv. um breyt. á sektum við ólöglegar dragnótaveiðar, og það virðist eðlilegt, að ef hv. Alþ. fellst á þessa breyt. á lögum um botnvörpuveiðar, þá fallist það einnig á frv. varðandi dragnótaveiðar.
Í þessu sambandi mætti geta þess, að það er orðin venja að náða eftir föstum reglum þá, sem hafa ekið bifreið ölvaðir, þannig að í stað 10 daga fangelsisvistar komi 1–8 þús. kr. sekt, og fer sú upphæð eftir efnahag viðkomandi aðila. Hefur verið gripið til þessa ráðs vegna skorts á húsnæði fyrir fanga. Var þá líka miklu betra að veíta mönnum náðun en sleppa mönnum alveg, en láta þá eina sitja inni, sem ekki vilja borga. Ef nú þetta frv., sem hér liggur fyrir, nær fram að ganga, þá væri einnig rétt að flytja frv. um breyt. á þessum lagaákvæðum varðandi akstur undir áhrifum áfengis.