08.12.1950
Neðri deild: 34. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 514 í B-deild Alþingistíðinda. (1118)

20. mál, bann gegn botnvörpuveiðum

Frsm. meiri hl. (Sigurður Ágústsson):

Herra forseti. Frv. því, sem hér er til meðferðar á þskj. 20, var vísað til sjútvn. þessarar d., en n. varð ekki sammála um afgreiðslu frv. Minni hl., hv. þm. Borgf., er andvígur frv. og hefur lagt fram sérstakt nál. á þskj. 239. Meiri hl. n. er frv. meðmæltur og hefur gefið út nál. á þskj. 269, þar sem hann mælir með samþykkt frv.

Hæstv. dómsmrh. fylgdi frv. þessu úr hlaði við 1. umr. og færði fram þau rök, sem gera það nauðsynlegt, að áliti meiri hl. sjútvn., að þessar brtt. verði gerðar á l., sem frv. er um.