30.01.1951
Neðri deild: 58. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í B-deild Alþingistíðinda. (1266)

47. mál, loðdýrarækt

Ásgeir Bjarnason:

Herra forseti. Ég lýsti því yfir við umr. um daginn, að ef þær till., sem við hv. 5. landsk. bárum fram, næðu ekki fram að ganga, mundi ég fylgja frv. eins og það kæmi frá Ed.; þó að ég teldi það ekki góða lausn, þá væri það kannske sú næstbezta. Hins vegar voru þær till., sem hv. landbn. bar fram, algerlega felldar, og það tel ég til stórra lýta að láta slíkt frá sér fara. Í þeirri von, að þetta atriði málsins horfi til bóta á næsta þingi, segi ég já.