16.11.1950
Efri deild: 20. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 569 í B-deild Alþingistíðinda. (1283)

58. mál, skipulag kauptúna og sjávarþorpa

Frsm. (Rannveig Þorsteinsdóttir):

Herra forseti. Aðaltilgangur frv. þessa er að tryggja með lögum skipulagsgjald af nýbyggingum, og skal gjaldið reiknast af brunabótaverði nýbygginganna. — Heilbr.- og félmn. hefur rætt frv. þetta á fundi og mælir með, að það verði samþ.