23.01.1951
Neðri deild: 54. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 570 í B-deild Alþingistíðinda. (1289)

58. mál, skipulag kauptúna og sjávarþorpa

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Ég ætla aðeins að segja örfá orð um þetta frv., en það er, eins og menn muna, komið frá Ed. og hefur legið þar lengi. Þar voru gerðar smávægilegar breyt. á lögum um skipulag kauptúna og sjávarþorpa. Það hefur verið mjög erfitt að innheimta gjöld af lóðunum vegna tíðra eigendaskipta. — Ég vænti þess, að hv. deild geti fallizt á þetta frv., og þó að liðið sé á þingið vona ég, að málið fái afgreiðslu. — Að lokum legg ég svo til, að frv. verði vísað til heilbr.- og félmn.