01.02.1951
Efri deild: 59. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í B-deild Alþingistíðinda. (1322)
55. mál, Náttúrugripasafn Íslands
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Herra forseti. Frv. þetta, sem hér liggur fyrir, er eiginlega engin ný breyt. frá því, sem áður var, það er aðeins staðfesting á þeim gerðum, sem ríkisstj. er búin að skipuleggja áður. Við náttúrugripasafnið, sem er í rauninni og þarf að vera víðtæk stofnun og mikilsverð fyrir ríkið, er nú þegar búið að fullráða og í rauninni skipa sem embættismenn 2 prófessora, annar hefur prófessorsnafnbót og líklega eru báðir á prófessorslaunum. Því miður hefur n. ekki tekizt að ná tali af menntmrh., sem nú er veikur, og mun réttara, áður en málið kemur til 3. umr., að því sé kippt í lag, sem ábótavant er, ef eitthvað er. En sem sagt, það eru þegar starfandi við safnið fastráðnir 2 starfsmenn, sinn við hvora deild, en grasafræðideild hefur að vísu ekki fastráðinn mann enn þá, en það stendur til bóta og liggur fyrir að ráða hann þá og þegar, og er ekki neitt við því að segja að það verði.
Hv. Nd. hefur verið einhuga um það, bæði n. og d., að leggja með frv. þessu óbreyttu. — Í 5. gr. frv. er þess getið, að fasta starfsmenn, fleiri en þessa þrjá, eigi ekki að ráða, nema til eins árs í senn, og því vildum við ekki breyta, jafnvel þó að í grg. sé þess getið, að búið sé að ráða aðstoðarstúlku við safnið. Ég held það sé rétt að gera það að skilyrði, því að það horfir ekki svo vænlega fyrir ríkissjóð að fara frekar í fjáreyðslu en kröfur standa til hjá forstöðumönnum stofnana, og þess vegna höfum við í nál. tekið fram, að við treystum því, að ekki sé fjölgað starfsmönnum við safnið, nema brýn nauðsyn sé á því. Við viljum láta þetta koma fram og teljum, að það sé ekki hægt að gera það nema leita til þingsins, en sú óvenja er við flestar stofnanir, að það er gert eftir geðþótta forstjóranna, með leyfi stj., ef þess er leitað, að fjölga eftir því, sem í fljótu bragði virðist vera þægilegt. En n. var öll sammála um það nú við þessa umr. að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt, en ef eitthvað kemur fram og við getum náð í frekari upplýsingar milli umr., þá verður það borið fram fyrir d. við 3. umr. En okkur þótti ekki rétt, þar sem áliðið er þingtímans, að tefja þessa umr., svo að málið þyrfti ekki að daga uppi nú á þessu þingi.