29.01.1951
Efri deild: 57. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 588 í B-deild Alþingistíðinda. (1335)

132. mál, bifreiðalög

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Það er aðeins út af brtt. á þskj. 569. Brtt. er um það, að lögin öðlist gildi þegar í stað. Það hafði gleymzt að ákveða það í frv. upphaflega, en mér var bent á þetta alveg réttilega af hv. 1. þm. N-M. Það er að sjálfsögðu rétt, að brtt. verði samþ. og málið gangi sína leið.