15.12.1950
Efri deild: 41. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 617 í B-deild Alþingistíðinda. (1434)

144. mál, eignakönnun

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins taka það fram, að mestallur kostnaðurinn við þennan kafla er að bjóða þessi bréf út til sölu, og er sá kostnaður sáralítill. Auk þess er það ekki nema sanngjarnt, að ríkið fái að einhverju leyti greiddan þann kostnað, sem er við það að leggja þennan hluta skattsins á.