01.02.1951
Neðri deild: 59. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 618 í B-deild Alþingistíðinda. (1444)

144. mál, eignakönnun

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Ég ætla að biðja um, að þetta mál verði tekið út af dagskrá. Umr. voru um það í fjhn. fyrir helgi, og afgreiddi nefndin málið á fundi, sem haldinn var, en ég var ekki viðstaddur sökum veikinda. Óska ég þess, að málinu verði frestað, svo að mér gefist kostur á að ræða við nefndarmenn.