01.03.1951
Efri deild: 78. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 638 í B-deild Alþingistíðinda. (1520)

2. mál, hlutatryggingasjóður bátaútvegsins

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Eins og ég tók fram, þá tel ég æskilegt, að hægt væri að bæta sjóðnum þetta, en ég get á þessu stigi ekki sagt annað eða meira en það, að það verður að fara eftir því, hvernig ástatt er þegar næstu fjárl. verða undirbúin, hvort menn telja mögulegt að leggja til, að þetta sé tekið á þau eða ekki. Við vitum ekki, hvernig ástatt verður þá, og það getur verið, að það verði ekki mögulegt. Þess vegna vil ég ekki gefa um það yfirlýsingu, en það eitt get ég sagt, að ég teldi mjög æskilegt að bæta sjóðnum þetta, því að ég vil fremur segja minna en meira um þetta mál fyrirfram, þannig að það verði ekki hægt að segja, að það hafi verið gefin heit, sem ekki hafi verið staðið við.