01.03.1951
Efri deild: 78. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 642 í B-deild Alþingistíðinda. (1526)

2. mál, hlutatryggingasjóður bátaútvegsins

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins benda hv. frsm. á það, hvort hann geti ekki fallizt á eftir atvikum að biðja hæstv. forseta um að fresta málinu um stund og eiga síðan tal við hæstv. ráðh. um það, hvort hann vilji ekki beita sér fyrir því, að tekinn verði upp á næsta fjárlagafrv. liður til endurgreiðslu á stofnfé sjóðsins, svo framarlega sem eitthvað alveg sérstakt kemur ekki til. Ég skýt þessu aðeins fram, ef hv. frsm. vildi taka það til athugunar.