01.03.1951
Efri deild: 78. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 642 í B-deild Alþingistíðinda. (1527)

2. mál, hlutatryggingasjóður bátaútvegsins

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Ég tek það aðeins fram, að ég treysti mér ekki til að segja meira um þetta mál en ég nú þegar hef sagt. Ég get ekki gefið aðrar yfirlýsingar um þetta mál en ég þegar hef gert, né heldur bundið það fastmælum, að þessi fúlga verði tekin upp á næsta fjárlagafrv. Það getur margt komið til á þeim tíma, og mér finnst ekki ástæða til, að þetta sé bundið fastmælum. Hins vegar geta þeir, er þetta vilja, komið fram á næsta þingi og barizt fyrir því þá, að þetta sé tekið inn á fjárlög, — en sem sagt, ég treysti mér ekki til að ákveða nú, hvort það verður í fjárlagafrv. eða ekki.