25.10.1950
Neðri deild: 9. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í B-deild Alþingistíðinda. (174)

36. mál, togarakaup ríkisins (lántökuheimild)

Frsm. (Sigurður Ágústsson):

Herra forseti. Eins og nál. fjhn. á þskj. 76 ber með sér, hefur n. orðið á eitt sátt um að mæla með því, að frv. verði samþ. — Eins og tekið er fram í aths. við lagafrv. þetta, er full nauðsyn á að veita ríkisstj. heimild til þessarar lántöku, og sé ég, að óþarft er að fara um það fleiri orðum.