03.03.1951
Efri deild: 82. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 815 í B-deild Alþingistíðinda. (1805)

176. mál, lántaka handa ríkissjóði

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég hefði ekki tekið hér til máls, ef hv. þm. Vestm. hefði ekki vikið að nál. meiri hl. En í því sambandi get ég upplýst, að meiri hl. n. hefur gengið frá málinu, og ég býst við, að þess vegna væri hægt að taka málið fyrir t.d. þegar í kvöld, ef hæstv. forseti hefði hugsað sér það.