28.02.1951
Sameinað þing: 48. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 837 í B-deild Alþingistíðinda. (1850)

150. mál, fjáraukalög 1948

Forseti (JPálm):

Út af þeirri aths., sem fram hefur komið, vil ég segja, að afgreiðsla fjáraukal. hafi venjulega verið skoðuð sem hreint formsmál, því að auðvitað er ríkisreikningurinn aðalatriðið, og það var fyrir óaðgæzlu, er fjárlögin voru sett í Sþ., að ríkisreikningarnir voru ekki látnir fylgja með.