15.12.1950
Neðri deild: 41. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 899 í B-deild Alþingistíðinda. (1968)
59. mál, vinnumiðlun
Frsm. 1. minni hl. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Ég ætla að svara hv. 1. þm. Rang. nokkrum orðum. Hann kvaðst ekki sjá, að nein veruleg breyting verði á skipulagi vinnumiðlunar, þótt frv. yrði samþ. Hann sér engan mun á því, hvort vinnumiðlunin er í höndum bæjarstjórna eða óháðra ríkisstofnana. Mig furðar á, að hv. þm. skuli engan mun sjá á þessu. Hann hefði getað lært ýmislegt af ræðunni, sem verkamaður flutti hér áðan. Hv. 1. þm. Rang. lítur vissulega öðruvísi á svipað mái. Harðvítug deila hefur t.d. orðið um búnaðarráð og skipun þess. Þar var deilt um skilyrði til pólitískra áhrifa, og þar skorti ekki, að hv. þm. sæi, hvílík hætta það er, að skilyrði væru til pólitískrar íhlutunar. Þá voru augu hans sjáandi, því að þar stafaði hættan frá andstæðingum hans. Hér sér þm. hins vegar engan mun. Þjónusta hans og flokksmanna hans við þau öfl, sem hér eru að verki, gengur svo langt, að þeir ganga með algerlega lokuð augun, enda hrasa þeir og detta. Rök hans eru öll á tréfótum, og þess vegna fellur hann, — og fall hans er mikið. Hv. þm. spurði, hvers vegna ég flytti till. um rannsókn á ríkisútvarpinu og hvers vegna ég tæki það eitt út úr af ríkisstofnunum, því ástandið væri sízt verra þar en annars staðar. Væri ástandið slæmt í útvarpinu, væri það jafnslæmt í öðrum ríkisstofnunum. Hann ætti að vita það, því að hann á sæti í fjvn. Ég vil benda hv. þm. á, að því fylgir skylda að eiga sæti í fjvn. Ef þetta er satt, sem hann sagði, að það ætti sér stað slík óstjórn í fleiri stofnunum, hvernig getur hann þá leyft sér að skýra frá óstjórninni og sukkinu í ríkisstofnunum, án þess að koma með till. til bóta, till. um að „hreinsa til“? Ástæðan til till. minnar um útvarpið var sú, að ég taldi varið of litlu fé til dagskrárinnar. Var óverjandi, að þar skorti fé, fyrst hægt var að sanna, að stjórnarkostnaður væri óhóflegur. Við Alþfl.-menn erum reiðubúnir að styðja aðrar ráðstafanir til sparnaðar. Hv. þm. hefur aðstöðu til að láta til sín taka á þessu sviði, ef hann vill. En hann heldur verndarhendi yfir óstjórninni og sukkinu, þótt hann tæpi á því hér, að um slíkt sé að ræða. — Hv. þm. gerir mikið úr sparnaði frv., sem muni nema um 105 þús. kr., og gleymir að nefna aukin útgjöld úr bæjarsjóði. Það er þó að kasta krónunni, en spara eyrinn, ef dregið er úr vinnumiðlun í landinu. Það kostar margfalt meira en þessar 100 þús. kr. Ef ríkissjóð vantar 100 þús. kr., skal ég benda á ótal möguleika til að spara þessar 100 þús. kr. Má nefna fjölda stofnana, sem hægt er að spara við, t.d. Búnaðarfél. Málsvari Alþfl. gerði þetta að umtalsefni í fjárlagaumræðunum. Hjá Búnaðarfélaginu væri hægt að spara mörg hundruð þús. kr. — En þá langaði hv. þm. Rang. ekkert til að spara.
Hv. þm. sagði, að Ísland væri enn ekki í alþjóðavinnumálastofnuninni. Þetta er rangt. Ísland er þar fullgildur aðili. Hv. þm. mun hafa átt við það, að samþykktin, sem ég gat um, hafi ekki verið staðfest af Íslandi. En fulltrúar Íslands hafa greitt atkv. með henni og það á að leggja hana fram til staðfestingar. Alþingi hefur ekki fengið tækifæri til að segja já eða nei, því að það hefur ekki verið spurt. Í staðinn ber ríkisstj. fram frv. þvert ofan í samþykkt alþjóðavinnumálastofnunarinnar.
Að lokum vil ég vekja athygli á hinum sérkennilegu kjarnyrðum í niðurlagi ræðu hv. 1. þm. Rang. Hann bauð Alþfl. upp á ástaratlot Sjálfstfl. Það er óvenjulegt, að drós bjóði upp á atlot annarrar drósar, en svo langt eru stjórnarflokkarnir nú leiddir. Framsfl. hefur sótt fast eftir vinfengi við Alþfl. Hann er nú hættur því og býður þá upp á faðm Sjálfstfl. í staðinn. En það verður ekki þegið heldur. Það er í sjálfu sér sómi fyrir Alþfl., að fyrst skuli Framsfl. ganga á eftir honum með grasið í skónum, og vilja síðan koma honum í vinfengi við Sjálfstfl., þegar hann hefur fengið hryggbrot. Allt er þetta mjög óvenjulegt og virðist bera vott um það, að samlífið í ríkisstj. sé með undarlegum hætti og öðrum en menn eiga að venjast. En engin von er til, að slík bónorð beri nokkurn árangur. Gengislækkunin hefur spillt mannorði þessara flokka meira en svo, að Alþfl. vilji eiga við þá nokkur skipti.