12.01.1951
Neðri deild: 48. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 919 í B-deild Alþingistíðinda. (1987)

59. mál, vinnumiðlun

Frsm. meiri hl. (Helgi Jónasson):

Herra forseti. Ég vil mælast til þess við forseta, að hann taki málið út af dagskrá, því að komið hefur fram brtt., sem nefndin hefur enn ekki getað tekið afstöðu til. Óska ég því, að málinu verði frestað fram yfir helgi.