04.12.1950
Efri deild: 29. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 946 í B-deild Alþingistíðinda. (2066)

89. mál, verðlag

Frsm. (Rannveig Þorsteinsdóttir):

Herra forseti. Það kom til tals við 2. umr. þessa máls, að allshn. hefði ekki átt tal við viðskmrh. um þetta frv., og lofaði ég fyrir hönd n. að sjá um, að það yrði gert milli umr. Form. n. hefur nú rætt málið við hæstv. viðskmrh., og hefur hann fyrir sitt leyti engar athugasemdir við það að gera.