15.12.1950
Neðri deild: 41. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 946 í B-deild Alþingistíðinda. (2073)

89. mál, verðlag

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Herra forseti. Ég get látið nægja að skírskota til nál., en n. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt. Athugasemd er í nál. frá tveim hv. nm., sem stafar af því, að þeir voru ekki alveg búnir að ganga frá afstöðu sinni, þegar n. afgr. málið, en síðar hafa þessir hv. þm. tjáð mér, að eftir nánari athugun tækju þeir undir álit n. um að samþ. frv. óbreytt.