18.12.1950
Neðri deild: 43. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1033 í B-deild Alþingistíðinda. (2170)

88. mál, aðstoð til útvegsmanna

Finnur Jónsson:

Það er rétt hjá hæstv. atvmrh., að ég hef ekki lagt sérstaka áherzlu á seinni brtt., sem ég hef lagt hér fram og verið beðinn að flytja hér af mönnum, sem telja rétt, að hún komi undir atkv. Alþ. Um fyrri till. vil ég láta þess getið, að ég tel, að hún muni ráða bót á ákvæði, sem annars mun gera skuldaskilin miklu ólíklegri til þess að koma að notum. Ég teldi það ákaflega misráðið af Alþ. afgr. vitandi vits l., sem eru þess eðlis, að þau sennilega ná ekki tilgangi sínum.