15.12.1950
Efri deild: 40. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1066 í B-deild Alþingistíðinda. (2193)
121. mál, almannatryggingar
Frsm. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Heilbr.-og félmn. hefur ekki tekið þetta mál til umræðu síðan það var afgr. hér við síðustu umr., en mér er kunnugt um það, að hv. 4. þm. Reykv. (HG) hefur hugsað sér að bera fram brtt. við þessa umr. hér og hefur borið það undir einstaka nm., án þess þó, að haldinn hafi verið um hana annar fundur. Ég hef ekki séð, að brtt. hafi verið útbýtt, en vildi gjarnan óska þess, að hæstv. forseti fengi um það vitneskju frá skrifstofunni, hvort till. hefur verið prentuð, og afgreiða málið a.m.k. ekki fyrr en sú vitneskja liggur fyrir. — Ég sé, að hv. 4. þm. Reykv. er nú kominn í d. Ég var að minnast hér á till., sem von er á í sambandi við afgreiðslu almannatryggingal., en þar sem hv. þm. er nú kominn, get ég látið máli mínu lokið hér. Ég hef sem frsm. meiri hl. ekkert við málið að athuga, eins og það er, og mun ekki bera fram brtt., en mun fylgja þessari brtt., ef hún er eins og talað var um í gær.