19.12.1950
Neðri deild: 45. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1098 í B-deild Alþingistíðinda. (2242)

121. mál, almannatryggingar

Frsm. (Helgi Jónasson):

Herra forseti. Nefndarmenn hafa heyrt tilmæli hæstv. forsrh. viðvíkjandi brtt. okkar, og þar sem ráðh. hefur gefið fyrirheit um það, að till. verði tekin til nýrrar athugunar strax eftir nýár, get ég sagt, að nefndin í fallist á að taka till. til baka og væntir þess, að málið verði tekið til rækilegrar yfirvegunar eftir nýár.