18.01.1951
Neðri deild: 52. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1131 í B-deild Alþingistíðinda. (2351)
77. mál, jeppabifreiðar o.fl.
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Ég ætla aðeins að segja örfá orð í sambandi við það, að hv. þm. Dal. sagði. að ekki væri hægt að samþ. till. mína um að fella niður a-lið, þar sem ég láti ekkert í staðinn. Ég get ekki séð, að það þurfi neitt að koma í staðinn. Þetta var ekki í frv., þegar það fór úr Nd., og held ég, að hv. þm. Dal. hljóti að sjá, að þá var frv. betra en nú, þegar það kom úr Ed. — En þessi rök hv. þm. Dal. eiga ekki við neitt að styðjast. Það þarf ekkert í staðinn fyrir, þó að a-liður falli niður.