08.12.1950
Neðri deild: 34. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1141 í B-deild Alþingistíðinda. (2396)

46. mál, orkuver og orkuveita

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. Ég vildi aðeins bakka hv. iðnn. fyrir afgreiðslu þessa máls og taka það fram, að ég felli mig fullkomlega við þær brtt., sem hér liggja fyrir. Ég vil aðeins bæta því við. að ég fel brýna nauðsyn til þess, að í beinu framhaldi af þessu verði sett l. um nýja orkuveitu rafmagnsveitna ríkisins og l. til eflingar raforkusjóði, því að brýn nauðsyn ber til, að ekki dragist úr hömlu, að hann sé efldur. Að endingu þakka ég svo n. fyrir ágæta afgreiðslu þessa máls.