06.11.1950
Neðri deild: 15. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í B-deild Alþingistíðinda. (240)

27. mál, siglingalög

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Þetta frv. er flutt af ríkisstj. til staðfestingar bráðabirgðalögum, sem gefin voru út s.l. sumar til þess að greiða fyrir því, að síldarútgerðarmenn eða skipstjórar gætu fengið úttekt á vistum til skipa sinna, vegna þess, hve illa gekk síldveiðin. N. hefur athugað frv. og leggur til, að það verði samþ. óbreytt.