10.11.1950
Efri deild: 17. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1226 í B-deild Alþingistíðinda. (2504)

44. mál, sveitarstjórnarkosningar

Frsm. (Rannveig Þorsteinsdóttir):

Herra forseti. Í sambandi við þetta mál hefur komið til mála í n., að æskilegt væri að athuga annað atriði í þessum lögum, þ.e. lögum um sveitarstjórnarkosningar. Þetta atriði er nú til athugunar, og ég vil beina ósk til hæstv. forseta um, að málinu verði nú frestað, og mun þessari athugun verða lokið nú fyrir helgi.