12.01.1951
Neðri deild: 48. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1350 í B-deild Alþingistíðinda. (2794)

76. mál, áfengislög

Skúli Guðmundsson:

Það er svo með þessi mál, að ég tel þá brtt., sem ég er með, engu þýðingarminni en ákvæði frv. sjálfs, og ég tel því eðlilegt, að þessi till. fái þinglega meðferð og komi hér undir atkv. Ég get fyrir mitt leyti fallizt á að hafa þetta víðtækara og afnema vínveitingaleyfin, en ég reiknaði með, að enn örðugra væri að koma því fram heldur en þó þessari breyt., sem ég er með. En ef það er útlit fyrir að samkomulag náist um það, þá skal ekki standa á mér að fylgja því.