05.02.1951
Efri deild: 64. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í C-deild Alþingistíðinda. (2910)
97. mál, tollskrá o.fl.
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég sé, að hv. fjhn. hefur klofnað um þetta mál. Hv. frsm. minni hl. (BrB) er hér ekki viðstaddur, en hefur gert grein fyrir afstöðu sinni í nál. og leggur til, að frv. verði samþ. Hins vegar leggur meiri hl. n. til, að frv. verði fellt, og er það aðallega á þeirri forsendu, að gildandi tollalöggjöf sé undirstaðan undir tolltekjum ríkisins eins og þær séu áætlaðar á yfirstandandi ári. Virðist mér hér vera nokkuð seilzt um öxl, því að engum getur dottið í hug, að grundvellinum undir tolltekjunum sé raskað að neinu ráði, þótt þetta frv. verði samþ.
Á árinu 1947 voru flutt inn af þessum hljóðfærum, sem hér um ræðir, 3 flygel, 247 píanó, 35 orgel og harmóníum, hlutar til orgela og harmónía fyrir 4 þús. kr. og strengjahljóðfæri ýmiss konar fyrir 121 þús. kr. Frv. nær til þeirra hljóðfæra, sem eru í notkun í sambandi við kennslu í skólum landsins og eru þannig orðin kennslutæki, og þykir mér mjög ósanngjarnt að plokka inn í ríkissjóð 7—120 aura af hverju kílói af þessum vörum í vörumagnstoll, síðan 30–80% í verðtoll, en ofan á hann bætist svo 45% álag samkvæmt gengisskráningarl., þar sem hér er um hliðstæðu að ræða við erlendar bækur, sem eru tollfrjálsar. Nú hefur viðhorfið enn breytzt til þessa máls síðan frv. var samið og flutt. Það hefur sem sé verið ákveðið, að hljóðfæri skuli keypt inn fyrir hinn svokallaða vélbátagjaldeyri eða útvegsmannagjaldeyri, sem leggja má á 50–60%, og þar sem vörur, sem keyptar verða inn fyrir slíkan gjaldeyri, verða óháðar verðlagseftirliti, eru miklar líkur til, að verð á þessum menningartækjum keyri svo úr hófi, að engum af yngri kynslóðinni verði kleift að eignast þessi tæki, sem henni eru þó nauðsynleg við tónlistarnám. Hv. meiri hl. virðist ekki hið minnsta líta á það menningarstarf þjóðarinnar að tónmennta hana, en ég hygg þó, að það sé að verða útbreidd skoðun hér á landi, að fræðsla í tónlist hljóti að verða einn þátturinn í menntun ungu kynslóðarinnar. Mér finnst furðulegt, að hv. fjhn. skuli standa nálega einhuga að því að vilja fella frv. og færa ekki önnur rök fyrir því en að það sé verið að svipta undirstöðunni undan tolltekjunum með því, sem frv. fer fram á.
Ég leyfi mér þess vegna að vænta þess, að hv. d. sjái sér fært að samþ. till. hv. minni hl., sem leggur til, að frv. verði samþ.