18.01.1951
Efri deild: 52. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í C-deild Alþingistíðinda. (2968)

104. mál, orkuver og orkuveita

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég var ekkert að mæla á móti því, að þessi dagskrá væri að forminu til rétt, en afgreiðsla málsins fannst mér vera þannig, að það væri ekki rétt að taka þannig á málinu, og ég var að gera grein fyrir mínu atkv., svo að ég þyrfti ekki að standa upp við atkvgr.