16.01.1951
Efri deild: 50. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 64 í C-deild Alþingistíðinda. (3013)

38. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að spyrja hæstv. forseta að því, hvort þessar till. hv. þm. Barð. eigi að afgreiðast í sambandi við það mál, sem hér liggur fyrir. Mér skilst, að hér sé um að ræða mál, sem þyrfti að ganga gegnum 6 umr. og helzt vera í sérstöku frv., og tel óeðlilegt, að till. hv. þm. Barð. verði bornar undir atkvgr. í sambandi við það mál, sem hér liggur fyrir. Ég vil því óska eftir leiðbeiningum hæstv. forseta um það, hvort búast megi við atkvgr. um þetta mál nú og hvernig henni verður hagað.