17.01.1951
Efri deild: 51. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í C-deild Alþingistíðinda. (3025)

38. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Haraldur Guðmundsson:

Ég tel frv. þetta til lítilla bóta, ef að lögum verður, og mundi það skapa misræmi til hins verra, frá því sem nú er. En ég mun þó sitja hjá við atkvgr., ef vera mætti, að hægt yrði að bera fram einhverjar brtt. við 3. umr., sem til bóta yrðu á frv.