20.11.1950
Neðri deild: 24. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í B-deild Alþingistíðinda. (305)

21. mál, meðferð einkamála í héraði

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Frv. þetta á þskj. 176 er upphaflega flutt að tilstuðlan dómsmrn. Miðar það að því, að ritari forseta Íslands geti, auk þeirra manna, sem á undan eru taldir, skipað dómarasæti. Í raun og veru er hér aðeins um leiðréttingu að ræða, og vonast ég til, að því verði að lokinni umr. vísað til hv. allshn.